Mikill áhugi á fræðslufundi SI á sviði verktakaréttar
Mikill áhugi var á fræðslufundi SI fyrir félagsmenn á sviði verktakaréttar en um fimmtíu manns sóttu fundinn í streymi og í Húsi atvinnulífsins í gær 12. maí. Á fundinum fjallaði Magnús Ingvar Magnússon, lögmaður og einn eigenda Landslaga, um tómlæti og fyrningu krafna verktaka og verkkaupa. Fjallaði hann jafnframt um dómaframkvæmd á þessu sviði og fór yfir hagnýt atriði fyrir verktaka. Fundarstjóri var Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI.
Félagsmenn SI sem sáu sér ekki fært að mæta geta haft samband við Lilju, lilja@si.is, og óskað eftir streymisupptöku.

