Fréttasafn



18. ágú. 2026 Almennar fréttir Menntun

Mikill áhugi á íslenskum námsgögnum

Mikill áhugi var á málstofu og sýningu um íslensk námsgögn sem fór fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð í síðustu viku. Yfir 200 manns skráðu sig og fjölmargir horfðu á beint streymi frá málstofunni. 

Markmiðið með viðburðinum var að varpa ljósi á þá þróun, nýsköpun og fjölbreytni sem á sér stað í íslenskri útgáfu og þróun námsgagna. Á dagskrá málstofunnar sem bar yfirskriftina Íslensk námsgögn - hvað er til? voru flutt stutt erindi frá fulltrúum menntakerfisins og útgáfugeirans. 

Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, sérfræðingur í mennta- og mannauðsmálum hjá SI, var fundarstjóri. Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS), setti málstofuna. Tryggvi Hjaltason, framkvæmdastjóri Andvara, fjallaði um ný verkfæri í verkfærakassanum, Páll Ásgeir Torfason frá MMS kynnti Minni miðstöð og nýja námsefnissíðu, Þórunn Rakel Gylfadóttir frá Hagþenki velti fyrir sér mikilvægi þess að horfa til enda strax í upphafi, Heiðar Ingi Svansson, framkvæmdastjóri Iðnú útgáfu, spurði hvaða íslensk námsgögn séu raunverulega til, Guðjón Hreinn Hauksson frá Kennarasambandi Íslands ávarpaði salinn frá samningafundi KI í Hveragerði. Að lokum flutti Íris E. Gísladóttir, formaður Þróunarsjóðs námsgagna og formaður IEI, lokaorð.

Sýningin endurspeglaði þá miklu grósku sem er í þróun íslensks námsefnis. Þrátt fyrir að reglulega heyrist að lítið sé gefið út af íslensku námsefni gaf sýningin allt aðra mynd því yfir 35 þátttakendur kynntu þar nýjar kennslubækur, rafræn námsgögn, gagnvirkar lausnir, námsöpp, lestrar- og stærðfræðiefni, íslensku sem annað mál, tónmennt, raungreinar, samfélagsgreinar, íslenskt talgervlaefni, námsmatslausnir og fjölbreyttar kennslulausnir fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla.

Að viðburðinum stóðu Samtök iðnaðarins, Samtök menntatæknifyrirtækja, Kennarasamband Íslands, Þróunarsjóður námsgagna, Rannís, Iðnú útgáfa, Félag íslenskra bókaútgefenda, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Menntaskólinn við Hamrahlíð. Hagþenkir og Reykjavíkurborg.

Hér er hægt er að nálgast upptöku af málstofunni:

https://www.dropbox.com/scl/fi/48jtlot1pm9b60jinqhjv/M-lstofa-um-slensk-n-msf-ng.mov?rlkey=xr8qmxq9f9w6xd4gm9yxma60u&dl=0


IMG_7259

IMG_7268

IMG_7272

IMG_7279

IMG_7288

IMG_7293

IMG_7300

IMG_7315

IMG_7329

IMG_7334

IMG_7343

IMG_7349

IMG_7361

IMG_7363

IMG_7368

IMG_7371

IMG_7379