Fréttasafn



15. júl. 2026 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

Mjög víðtæk merki um samdrátt í byggingariðnaði

Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Bítinu á Bylgjunni um stöðuna í byggingariðnaði og aukið atvinnuleysi. „Við erum að sjá mjög víðtæk merki um samdrátt. Það er ekki bara vinnumarkaðurinn, heldur sjáum við að það er að draga úr veltunni og uppbygging húsnæðis er að dragast saman. Þetta eru neikvæði teikn almennt.“

Ingólfur segir að svartsýni hafi aukist mikið. „Í könnun sem Gallup gerði nýlega sýndi að meðal stjórnenda í greininni telja 68% að aðstæður í efnahagslífinu séu slæmar fyrir þeirra fyrirtæki í byggingariðnaði og mannvirkjagerð. Enginn telur að þær séu góðar.“ Hann segir að það sé algjör viðsnúningur frá því sem var fyrir ári síðan. „Þegar horft er fram í tímann 6 mánuði í þessari könnun þá kemur fram að 53% telja efnahagshorfur muni versna á þeim tíma og ekki nema 10% að þær muni batna. Þetta eru rosalegar niðurstöður og þær benda til orsakarinnar í þessu sem að er þetta umhverfi þar sem kostnaðurinn hefur verið að aukast hratt og er hár. Við sjáum að skattar og gjöld hafa hækkað mikið undanfarið, fjármagnskostnaður er mjög hár og á sama tíma hefur dregið úr vexti spurnar eftir íbúðum og atvinnuhúsnæði.“

Hér er hægt að hlusta á viðtalið við Ingólf í heild sinni.

Bylgjan, 13. júlí 2026.