Ná þarf tökum á efnahagsmálum og efla samkeppnishæfni
Eftir nokkra daga kjósa landsmenn um viðræður við ESB um aðild. Eðli máls samkvæmt hefur athygli landsmanna og ráðamanna beinst að kosningunni og fátt annað verið rætt undanfarna mánuði. Hver sem úrslitin verða þá verða verkefnin þau sömu eftir kosningarnar: að ná tökum á efnahagsmálum og að efla samkeppnishæfni Íslands. Þau verkefni fara ekkert frá okkur. Endurskoðun kjarasamninga gæti hafist 1. september, þremur dögum eftir kosningarnar. Verðbólgan er hins vegar ekki eingöngu hagstjórnarvandi. Hún er samhæfingarvandi og hún er þrálát þótt allir vilji sömu niðurstöðu, því enginn einn aðili getur leyst hana. Þess vegna þarf þjóðarsátt. Þannig hefst grein Sigurðar Hannessonar, framkvæmdastjóra SI, í Viðskiptablaðinu sem ber yfirskriftina Verkefnin fara ekkert.
Sigurður segir heiminn flóknari nú en hann hafi verið um langt skeið. „Aukin spenna í samskiptum ríkja birtist okkur í auknum hömlum á viðskipti og í átökum. Örar tækniframfarir með hraðri þróun gervigreindar krefjast einnig athygli stjórnvalda, stjórnenda fyrirtækja og almennings. Þetta kallar ekki einungis á breytta forgangsröðun þar sem viðnámsþróttur, alþjóðaviðskipti og gervigreind fá stóraukið vægi, heldur vinna stjórnvöld í mörgum ríkjum heims hörðum höndum að því að efla samkeppnishæfni síns lands.“ Hann segir að samkeppnishæfni sé heimsmeistaramót ríkja í lífskjörum. „Ef við vinnum ekki stöðugt að umbótum þá drögumst við aftur úr. Með því að skapa fyrirtækjum góð skilyrði til rekstrar er lagður grunnur að meiri verðmætasköpun. Þannig verða til verðmæt störf og tekjur hins opinbera svo hægt sé að veita margvíslega þjónustu. Samkeppnishæfni er þannig forsenda góðra lífskjara.“
Í niðurlagi greinar sinnar segir Sigurður að við séum með öll spil á hendi. „Nýtum veturinn vel til þess að taka til hendinni heima fyrir.“
Hér er hægt að lesa grein Sigurðar í heild sinni.
Viðskiptablaðið, 18. ágúst 2026.

