Fréttasafn



10. jún. 2021 Almennar fréttir Menntun

Náið samstarf skóla og atvinnulífs innsiglað

Fulltrúar mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Iðunnar fræðsluseturs og Rafmenntar hafa undirritað samkomulag vegna breytinga á vinnustaðanámi. Breytingarnar eru tilgreindar í nýrri reglugerð mennta- og menningarmálaráðherra, en þar er framhaldsskólum falið að hafa umsjón með nemum í vinnustaðanámi og tryggja að þeir fái þjálfun sem uppfyllir tiltekin hæfniviðmið, í samstarfi við atvinnulífið. Markmið reglugerðarinnar er að efla iðn- og verknám, fjölga nemendum og veita þeim og fyrirtækjunum betri þjónustu. Athöfnin fór fram í húsnæði vélsmiðjunnar Héðins í Hafnarfirði, að viðstöddum hópi fólks sem hefur tekið þátt í undirbúningnum.

Í tilkynningu segir að með undirritun samkomulagsins taki fræðslumiðstöðvar stærstu iðngreinanna að sér þjónustu við bæði atvinnulíf og skóla. Rafmennt og Iðan munu aðstoða framhaldsskóla við að finna pláss hjá vinnustöðum og koma nemendum á samning, og til vara á svokallaða skólaleið. Iðan og Rafmennt munu jafnframt hvetja fyrirtæki með markvissum hætti til að taka nema í vinnustaðanám og aðstoða þau við skipulagningu námsins. Þá munu félögin sinna gæðaeftirliti svo tryggt sé að fyrirtæki uppfylli sett skilyrði um þjálfun.

Margrét Halldóra Arnarsdóttir, stjórnarformaður Rafmenntar, Páll Magnússon, ráðuneytisstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu, og Jóhanna Klara Stefánsdóttir, stjórnarformaður Iðunnar, skrifuðu undir samkomulagið.

Í tilkynningunni kemur fram að þau segi að samstarfið marki tímamót, þar sem yfirvöld, skólar og atvinnulíf taki höndum saman um að bæta þjónustu við nemendur og stuðla að aukinni skilvirkni og gæðum námsins. Þetta sé eitt skrefið af mörgum sem tekin hafi verið til að auka veg og virðingu verklegs náms í landinu. Í ljósi stóraukinnar aðsóknar í starfsnám af ýmsum toga megi ætla að vel hafi tekist til í þeirri vinnu. 

Myndir/Golli

_DSF4349

_DSF4373

_DSF4394