Fréttasafn



5. okt. 2022 Almennar fréttir Ár grænnar iðnbyltingar Iðnaður og hugverk Orka og umhverfi

Norðurál er Umhverfisfyrirtæki ársins 2022

Á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem fram fór í Hörpu í morgun var tilkynnt um að Norðurál væri Umhverfisfyrirtæki ársins 2022. Í tilkynningu segir að kolefnisspor áls frá Norðuráli sé með því lægsta sem gerist í heiminum og hafi fyrirtækið sett sér það markmið að ná fullu kolefnishlutleysi. Norðurál er þátttakandi í þróunar- og nýsköpunarverkefnum sem miða að því að þróa tæknilega lausnir sem gera það mögulegt. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, veitti Norðuráli verðlaunin. Á myndinni eru ásamt forseta Íslands, Sólveig Kr. Bergmann, yfirmaður samskipta Norðuáls, Steinunn Dögg Steinsson, yfirmaður umhverfis- og öryggismála Norðuráls, og Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls.

Norðurál býður viðskiptavinum sínum umhverfisvænt ál undir vöruheitinu Natur-Al™. Það er markaðssett sem íslenskt ál, er rekjanlegt frá upphafi til enda framleiðsluferilsins og vottað af óháðum aðilum. Þegar litið er á ferlið í heild, frá vinnslu hráefna til afhendingar fullunninnar vöru, nemur kolefnisspor Natur-Al™ einungis fjórðungi af heimsmeðaltalinu.

Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls: „Við erum stolt af þeim árangri sem náðst hefur í rekstri Norðuráls og þakklát fyrir þann heiður sem fyrirtækinu er sýndur með því að vera útnefnt umhverfisfyrirtæki ársins 2022. Það er áhugaverð staðreynd að ef öll álver í heiminum framleiddu ál með sama hætti og Norðurál myndi losun CO2 á heimsvísu minnka um 550 milljón tonna á ári. Til samanburðar nemur heildarlosun Íslands 4,5 milljónum tonna á ári. Við hjá Norðuráli vinnum stöðugt að lágmörkun umhverfisáhrifa og ábyrgri nýtingu orku og hráefna. Í samræmi við skuldbindingar Íslands gagnvart Parísarsamningnum höfum við sett okkur markmið um að árið 2030 verði losun gróðurhúsalofttegunda (utan viðskiptakerfis ESB) um að minnsta kosti 40% minni en hún var árið 2015. Nú þegar hefur losun gróðurhúsalofttegunda dregist saman um 27% og úrgangsmagn um 8%. Þessi góði árangur hefði aldrei náðst nema fyrir elju og áhuga starfsfólksins okkar.”  

Í umsögn dómnefndar segir meðal annars að markmið fyrirtækisins séu skýr og aðgengileg en aðgerðaáætlun Norðuráls í loftslagsmálum samanstendur af vel skilgreindum aðgerðum sem er leiðarvísir fyrirtækisins að settu marki. Í dómnefnd Umhverfisverðlauna atvinnulífsins sitja Gréta María Grétarsdóttir, formaður, Brynjólfur Bjarnason og Sandra Rán Ásgrímsdóttir.

Hér er hægt að nálgast myndband sem sýnt var þegar viðurkenningin var afhent:

https://vimeo.com/756793495

Myndir/BIG

Nordural_2Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls, þakkar fyrir viðurkenninguna.