Norðurlandafundur arkitektastofa haldinn í Osló
Þrír fulltrúar frá Samtökum arkitektastofa, SAMARK, sóttu nýverið samráðsfund norrænna samtaka arkitektastofa, Nordisk Pragmatik möde (NPM), sem fram fór í Osló dagana 1.–3. júní. Á fundinum komu saman fulltrúar frá samtökum arkitektastofa á Norðurlöndunum, meðal annars frá Noregi, Danmörku, Finnlandi, Svíþjóð og Íslandi. Fyrirkomulag samtakanna er ólíkt eftir löndum; í Danmörku, Svíþjóð og Íslandi starfa þau innan samtaka iðnaðarins, en í Noregi og Finnlandi eru þau sjálfstæð félagasamtök.
Fyrri hluti fundarins snéri að efnahagsástandi í löndunum og áhrifum þess á arkitektastofur. Almennt var staðan metin róleg á öllum mörkuðum, þó fulltrúar Danmerkur, Svíþjóðar og Finnlands telji merki um batnandi horfur. Norðmenn standa frammi fyrir svipuðum áskorunum og Íslendingar, meðal annars vegna hárra vaxta sem hafa áhrif á framkvæmdir.
Stór hluti fundarins fjallaði um áhrif gervigreindar á starfsemi arkitektastofa. Rætt var um tækifæri og áskoranir, áhrif á verkferla, breytt tekjumódel og hvernig stofur geta undirbúið sig fyrir nýtt starfsumhverfi. Ljóst er að gervigreind mun hafa víðtæk áhrif á greinina, þó enn sé óljóst hversu hratt og djúpstæðar breytingarnar verða.
Til lengri tíma var það rætt að starf arkitekta gæti þróast meira í átt að sköpun, hugmyndavinnu og lausnum, á meðan tæknin taki yfir hluta hefðbundnari verkefna. Á sama tíma var lögð áhersla á að standa vörð um gæði arkitektúrs í umhverfi þar sem tæknin gerir fleiri aðilum kleift að framleiða hönnunargögn.
Á lokadegi fundarins var unnið úr umræðum daganna og lagður grunnur að næsta fundi, sem fyrirhugað er að halda á Íslandi að ári. Þar verður meðal annars fjallað um opinber útboð, áframhaldandi þróun gervigreindar og áhrif hennar á viðskiptamódel arkitektastofa.
Á myndinni má sjá fulltrúana frá Íslandi; Ásta Birna Árnadóttir, stjórnarmaður SAMARK, lengst til hægri, Íris Gunnarsdóttir, viðskiptastjóri SAMARK hjá SI, fimmta frá hægri, og Halldór Eiríksson, formaður SAMARK, áttundi frá vinstri.

