Norrænir arkitektar funda í Kaupmannahöfn
Fulltrúar Samtaka arkitektastofa, SAMARK, hittu fulltrúa systursamtaka félagsins á Norðurlöndunum dagana 2.-4. júní í Kaupmannahöfn. Um árlegan viðburð er að ræða þar sem komið er saman til að ræða þróun, áskoranir og tækifæri greinarinnar í hverju landi. Fundurinn veitti mikilvæga innsýn í sameiginleg viðfangsefni sem og ólíkar áskoranir á milli landa. Farið var yfir efnahagslega stöðu greinarinnar í hverju landi auk þess sem haldin var vinnustofa um ný viðskiptalíkön fyrir arkitektastofur, tækifæri og áskoranir. Sonja Stockmarr, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Vilhelm Lauritzen, og Mette Skjold, framkvæmdastjóri og eigandi hjá SLA, héldu erindi um aðlögun að loftslagsbreytingum og líffræðilegan fjölbreytileika – ný viðskiptatækifæri fyrir arkitekta og landslagsarkitekta.
Fulltrúar Samtaka arkitektastofa á fundinum voru Halldór Eiríksson, formaður SAMARK, Ástríður Birna Árnadóttir, stjórnarmaður, Þórhildur Þórhallsdóttir, stjórnarmaður, og Eyrún Arnarsdóttir, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI.
Mads Mandrup Hansen, arkitekt og eigandi hjá C.F. Møller, í gönguferð um Carlsberg hverfið.
Metta Skjold, framkvæmdastjóri og eigandi hjá SLA.
Sonja Stockmarr, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Vilhelm Lauritzen.
Eyrún Arnarsdóttir, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI.
Þórhildur Þórhallsdóttir, Ástríður Birna Árnadóttir og Halldór Eiríksson, öll í stjórn SAMARK.
Maj Wiwe, hönnunarstjóri og landslagsarkitekt hjá Kobe, sagði frá landslagsarkitektúrnum í kringum Óperuhúsið.
Fulltrúar arkitektasamtaka allra Norðurlandanna.