Fréttasafn



  • Reykjanesbraut

9. nóv. 2009

Engin útboð fyrirhuguð á næstunni hjá Vegagerðinni

Vegagerðin gefur reglulega út Framkvæmdafréttir. Þar eru auglýst fyrirhuguð útboð og jafnframt greint frá niðurstöðum fyrri útboða. Samanburður á síðasta tölublaði og tölublaði frá sama tíma fyrir ári gefur ógnvekjandi mynd af ástandi á verktakamarkaði.

Ekkert útboð er auglýst og engin útboð eru fyrirhuguð á næstunni en á sama tíma í fyrr voru verkin 43, bæði stór og smá. Núna er ekkert verk á samningsborðinu en það voru jafnan 10 til 20 verk birt undir þessum lið í Framkvæmdafréttum.

Vegagerð hefur verið skorin niður um 7,5 milljarða á þessu ári og því er ekkert framundan og ekki verður ráðist í nein ný verk. Engu fjármagni verður varið til nýrra verkefna á næsta ári fyrir utan þau sem þegar eru komin af stað.

Samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar eru 2.200 manns úr mannvirkjagreinum atvinnulausir og illu heilli hlýtur þeim að fjölga hratt, þar sem ekkert er framundan og ríkið sker heilan málaflokk niður við trog.

Sjá má muninn hér.