Fréttasafn



  • Skólakrakkar

22. nóv. 2010

Kröfur til skólamáltíða

Mikil nýsköpun hefur átt sér stað við framleiðslu skólamáltíða á undanförnum árum en enn eru mikil sóknarfæri til úrbóta. Samstarf milli ólíkra fagsviða, sem koma að framkvæmd skólamáltíða með einum eða öðrum hætti, getur leitt af sér ýmsar framfarir.

Á málþinginu verður gerð grein fyrir lagaákvæðum og opinberum leiðbeiningum um skólamáltíðir, kynntar niðurstöður verkefnis um skólamáltíðir á Norðurlöndum, stefna sveitarfélaga, reglur um innkaup á matvælum og sjónarmið foreldra. Í pallborðsumræðum verður rætt um aðstöðu í skólaeldhúsum, framleiðslu máltíða í miðlægum eldhúsum, útboðslýsingar og fræðslu og ráðgjöf til sveitarfélaga og starfsfólks í mötuneytum.

Til málþingsins er boðið starfsfólki sveitarfélaga sem er ábyrgt fyrir skólamötuneytum, skólastjórnendum, starfsfólki skólaeldhúsa, framleiðslueldhúsa og birgja, foreldrum og öðru áhugafólki um skólamáltíðir.

Staður: Hvammur, Grand Hótel Reykjavík

Tími: 23. nóvember 2010 kl. 15-17

Dagskrá:

15:00 Setning Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri næringar hjá Lýðheilsustöð

15:15 Reynsla af skólamáltíðum á Norðurlöndum Ragnheiður Héðinsdóttir, forstöðumaður matvælasviðs Samtaka iðnaðarins

15:30 Innkaupastefna Reykjavíkur og tilraunverkefni um hverfainnkaup Ingibjörg H. Halldórsdóttir, Verkefnisstjóri um samræmda matseðla hjá Reykjavíkurborg

15:40 Útboð skólamáltíða og þjónustusamningar, kröfur til gæða og eftirfylgni Guðmundur Ragnar Ólafsson, innkaupastjóri Hafnarfjarðarbæjar

15:50 Sjónarmið foreldra Bryndís Haraldsdóttir frá Heimili og skóla

16:00 Pallborðsumræður

Auk fyrirlesara taka eftirtalin þátt: Jón Axelsson, framkvæmdastjóri Skólamats, Unnsteinn Ó Hjörleifsson, matreiðslumaður í Árbæjarskóla, Guðrún Adolfsdóttir, ráðgjafi hjá Rannsóknarþjónustunni Sýni, Guðjón Þorkelsson sérfræðingur hjá Matís og Herdís Guðjónsdóttir, formaður Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands.

Fundarstjóri: Atli Rúnar Halldórsson, ráðgjafi

17:00 Fundarlok

Aðgangur er ókeypis en tilkynna þarf þátttöku í síma 591 0100 eða með tölvupósti á netfangið: mottaka@si.is