Ný stjórn Félags húsgagna- og innréttingaframleiðenda
Ný stjórn var kosin á aðalfundi Félags húsgagna- og innréttingaframleiðenda sem fór fram 6. maí í Húsi atvinnulífsins. Jónas Kristinn Árnason hjá Brúnás var endurkjörinn formaður félagsins. Með honum í stjórn fyrir starfsárið 2026-2025 eru Hrafn Ingimundarson hjá Krumma, Guðmundur Ásgeirsson hjá Á. Guðmundsson, Halldór Gíslason hjá Beyki, og Sigurður R. Ólafsson hjá Smíðastofu R. Ólafs. Varamaður er Tómas B. Þorbjörnsson, sem jafnframt gegnir starfi endurskoðanda félagsins.
Gæði og ending skipta máli
Á fundinum var lögð áhersla á mikilvægi samstöðu innan greinarinnar gagnvart breyttu markaðsumhverfi og auknum kröfum í regluverki. Í umræðum á fundinum kom fram að framleiðendur standa frammi fyrir áskorunum. Var lögð áhersla á að félagið efli málflutning sinn fyrir vandaðri íslenskri framleiðslu.
Þá var rætt um nýjar kröfur frá Evrópu sem snúa að byggingarvörum. Fundarmenn voru sammála um að það væri mikilvægt hagsmunamál að framleiðendur standi saman að mótun sameiginlegrar sýnar til að tryggja að íslensk fyrirtæki standi jafnfætis erlendum keppinautum.
Hagsmunagæsla í ríflega níu áratugi
Félag húsgagna- og innréttingaframleiðenda á sér langa sögu en það var stofnað 1. október 1931 í þeim tilgangi að gæta hagsmuna stéttarinnar og efla samstöðu framleiðenda. Allt frá upphafi hefur félagið verið málsvari greinarinnar gagnvart hinu opinbera og almenningi, auk þess að stuðla að framförum í menntamálum og tækni.
Sigurður R.
Ólafsson, Halldór Gíslason, Hrafn Ingimundarson, Guðmundur
Ásgeirsson, Jónas Kristinn Árnason, formaður, og Tómas B. Þorbjörnsson.

