Ný stjórn Ljósmyndarafélags Íslands
Ný stjórn var kosin á aðalfundi Ljósmyndarafélags Íslands sem fram fór í gær í Húsi atvinnulífsins. Guðmundur Viðarson tók við sem formaður og aðrir í stjórn eru Rán P. Bjargardóttir, Anna Kristín Scheving, Gunnar Leifur Jónasson, Anton Bjarni Alfreðsson og Ólína Kristín Margeirsdóttir.
Ný stjórn, efri röð frá vinstri, Gunnar Leifur Jónasson, Ólína Kristín Margeirsdóttir, Guðmundur Viðarson og Rán P. Bjargardóttir. Í neðri röð eru Anna Kristín Scheving og Anton Bjarni Alfreðsson.
Laufey Magnúsdóttir fráfarandi formaður Ljósmyndarafélags Íslands.
Guðmundur Viðarsson nýkjörinn formaður afhendir Laufeyju Magnúsdóttur fráfarandi formanni félagsins blómvönd og gjöf sem þakklætisvott fyrir störf sín sem formaður félagsins sl. 5 ár.