Fréttasafn



10. mar. 2022 Almennar fréttir

Ný stjórn Samtaka iðnaðarins

Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins var tilkynnt um úrslit kosninga til stjórnar. Kosningaþátttaka var 83,06%. Kosið var um sæti formanns og fimm almenn stjórnarsæti. Eitt framboð barst til formanns SI og átta framboð til almennra stjórnarsæta.

Árni Sigurjónsson, Marel, var kosinn formaður með 98,03% greiddra atkvæða.

Þau sem hlutu flest atkvæði og setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins til næstu tveggja ára eru:

  • Arna Arnardóttir, gullsmiður
  • Halldór Halldórsson, Íslenska kalkþörungarfélagið
  • Hjörtur Sigurðsson, VBS verkfræðistofa
  • Jónína Guðmundsdóttir, Coripharma
  • Vignir S. Halldórsson, húsasmíðameistari

Fyrir í stjórn Samtaka iðnaðarins eru:

  • Ágúst Þór Pétursson, húsasmíðameistari
  • Guðrún Halla Finnsdóttir, Norðurál
  • Magnús Hilmar Helgason, Launafl
  • Sigurður R. Ragnarsson, ÍAV