Fréttasafn



15. apr. 2024 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Tannsmiðafélag Íslands

Ný stjórn Tannsmiðafélags Íslands

Ný stjórn Tannsmiðafélags Íslands var kjörin á aðalfundi félagsins sem haldinn var í Húsi atvinnulífsins 11. apríl. Ingibjörg Einarsdóttir situr áfram sem formaður, Eva Guðríður Guðmundsdóttir sem gjaldkeri og Markus Menczynski sem meðstjórnandi. Nýjar inn í stjórn eru Snædís Sveinsdóttir sem meðstjórnandi og Ásthildur Þóra Reynisdóttir sem ritari stjórnar.

Á myndinni eru, talið frá vinstri, Ásthildur Þóra Reynisdóttir, Eva Guðríður Guðmundsdóttir, Ingibjörg Einarsdóttir, Snædís Sveinsdóttir og Markus Menczynski.