Ný umbúðareglugerð ESB skapar miklar flækjur fyrir framleiðendur
„Nú þurfa smáframleiðendur að gerast sérfræðingar í einhverjum plastblöndum og útbúa skjöl sem er ekki endilega á allra færi. Fyrir risaframleiðendurna, með hundruð starfsmanna í vinnu, er það minna mál að bæta við þessari skriffinnsku,“ segir Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, meðal annars í viðtali Ásgeirs Ingvarssonar í Morgunblaðinu um nýja umbúðareglugerð Evrópusambandsins sem allt útlit sé fyrir að eigi eftir að valda íslenskum fyrirtækjum töluverðum vandræðum.
Í umfjölluninni kemur fram að fyrsti fasi reglugerðarinnar eigi að taka gildi innan ESB í þessari viku og stefni í að reglugerðin verði um síðir tekin upp á Íslandi í gegnum EES og muni þá líka gilda um umbúðanotkun á innanlandsmarkaði. Tekið er fram að Sigurður Helgi taki undir að reglugerðin hafi göfugan tilgang, enda sé gott að stefna að því að draga úr úrgangi, auðvelda endurvinnslu og vernda neytendur fyrir óæskilegum efnum í umbúðum en að útfærslan virðist hins vegar ekki hafa heppnast vel og útlit sé fyrir að reglugerðin muni skapa miklar flækjur sem munu bitna hvað þyngst á smærri framleiðendum og seljendum og gæti mögulega valdið töluverðri röskun á aðfangakeðjum innan álfunnar á meðan fyrirtæki átta sig almennilega á reglunum. „Það fyrsta sem vekur áhyggjur er öll skriffinnskan og þessi aukna umsýsla sem verið er að leggja á seljendur og framleiðendur. Allir þeir sem selja innan Evrópu og til álfunnar eru nú í vandræðum því þeir þurfa umbúðavottanir sem eru ekki endilega tiltækar. Þeir þurfa líka að fara í gegnum ítarlegt skráningarferli og er m.a. tiltekið í reglunum að þeir þurfi að vera með einhvers konar umboðsmann eða forsvarsmann í hverju einasta Evrópuríki sem þeir senda vörur til.“ Sigurður Helgi minnir á að fyrr í sumar hafi ESB afnumið tollfrelsi á smásendingar og tekið upp flöt innflutningsgjöld sem þurfi að greiða fyrir fram. Einnig hafi verið gerðar breytingar á VSK-löggjöfinni og fylgdi því líka mikið umstang. „Nú bætast umbúðakröfurnar ofan á og ég heyri það í kringum mig að þetta er að fylla mælinn hjá sumum.“
Morgunblaðið, 12. ágúst 2026.


