Fréttasafn



23. feb. 2026 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Nýr kafli í sögu tollanna og óvissan heldur áfram

Rætt er við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI, í kvöldfréttum Sýnar þar sem hann segir nýjan kafla vera kominn í sögu tolla Donalds Trump Bandaríkjaforseta, eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi þá flesta ólögmæta og að óvissa um tollana sé síst minni eftir dóminn. „Það má segja að það sé kominn nýr kafli í þessa sögu og óvissan sem ríkt hefur, hún heldur þá bara áfram. Hinn pólitíski vilji hefur verið skýr hjá bandarískum yfirvöldum um að leggja á tolla, þannig að þetta þýðir væntanlega að það þarf að hugsa um breytta framkvæmd eða breytta útfærslu til þess að ná fram þeim markmiðum en það má alveg reikna með því að það verði áframhald á þessum tollum.“

Í frétt Sýnar segir Sigurður að nú sé beðið eftir yfirlýsingu Bandaríkjaforseta og hans viðbrögðum við dómi Hæstaréttar. „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B og muni þá senn kynna það, eða gefa einhverjar vísbendingar að minnsta kosti um það hvernig ný útfærsla kunni að verða.“ Hann segir að á meðan óvissan sé eins mikil og hún sé nú verði að bíða eftir viðbrögðum úti, sjá hvert umfangið verði, nákvæm útfærsla tollanna og framkvæmd þeirra. „Það er svolítið erfitt að ráða í stöðuna núna en þetta, auðvitað, setur talsvert mikið strik í reikninginn fyrir bandarísk stjórnvöld, þessi dómur.“  

Á vef Vísis er hægt að horfa á fréttina í heild sinni.

Sýn, 20. febrúar 2026. 

Mikil óvissa heldur áfram fyrir íslensk fyrirtæki

Einnig er rætt við Sigurð á mbl.is þar sem hann segir nýjan kafla vera að hefjast í tollasögu Trumps og að óvissan sé enn mikil. „Um nokkurt skeið hefur verið óvissa í alþjóðaviðskiptum sem hefur birst okkur í tollum og verndarráðstöfunum af ýmsum toga. Við höfum líka séð það í auknu spennustigi í samskiptum ríkja. Með þessari ákvörðun Hæstaréttar Bandaríkjanna, sem að felldi úr gildi stóran hluta af þeim tollum sem bandarísk stjórnvöld hafa lagt á, má segja að nýr kafli sé að hefjast í þessari sögu og óvissan er enn þá mikil,“ 

Sigurður segir í frétt mbl.is að hinn pólitíska vilja bandarískra stjórnvalda hafi verið skýran varðandi að vilja vernda framleiðslu og afla ríkissjóði tekna með tollum. „Það má búast við því að það verði þá bara önnur útfærsla á þeim tollum, eins og þegar virðist hafa komið í ljós.“ Sigurður segir óvissuna hafa verið mikla fyrir íslensk fyrirtæki frá því að tollar Trumps tóku gildi og að augljóst sé að sú óvissa haldi áfram. Þá kemur fram í frétt mbl.is að hann velti jafnframt því fyrir sér hvað úrskurður Hæstaréttar Bandaríkjanna muni nú þýða fyrir alla þá sem flutt hafa vörur til Bandaríkjanna og greitt tollana fyrir. „Ég sá ummæli Trumps þess efnis að hann varð fyrir vonbrigðum með það að dómurinn skyldi ekki taka á því. Ef ég skil þetta rétt þá voru nokkuð skýr skilaboð um það að öðrum dómstólum væri eftirlátið að skera úr um það hvernig ætti að fara með það hvort að aðilar eigi þá bara rétt á endurgreiðslu. En þetta er bara flækjustig og mun væntanlega taka langan tíma að fá það á hreint.“

mbl.is, 20. febrúar 2026.