Nýr starfsmaður hjá Samtökum iðnaðarins
Magnús Þór Gylfason hefur verið ráðinn til Samtaka iðnaðarins sem ráðgjafi og hefur þegar hafið störf.
Magnús hefur verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi á sviði samskipta og upplýsingamiðlunar síðastliðið ár. Hann var forstöðumaður samskipta hjá Kviku banka á árunum 2023-2024 og þar áður forstöðumaður samskiptasviðs hjá Landsvirkjun í 11 ár, á árunum 2012-2023. Áður starfaði hann hjá Reykjavíkurborg sem skrifstofustjóri og aðstoðarmaður borgarstjóra og þá var hann um skeið framkvæmdastjóri samskiptasviðs Rio Tinto Alcan á Íslandi.
Magnús er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lagt stund á MBM framhaldsnám í sama skóla með áherslu á stjórnun og stefnumótun.
mbl.is, 12. júní 2025.
Vísir, 12. júní 2025.
Viðskiptablaðið, 12. júní 2025.