Fréttasafn



5. sep. 2022 Almennar fréttir Mannvirki

Nýr starfsmaður hjá SI

Elísa Arnarsdóttir hefur verið ráðin viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI í staðinn fyrir Eyrúnu Arnarsdóttur sem hefur hætt störfum hjá samtökunum.

Elísa er með meistarapróf í lögfræði frá Háskóla Íslands. Frá árinu 2017 starfaði Elísa sem lögfræðingur og markaðsfulltrúi Húseigendafélagsins þar sem hún sinnti meðal annars lögfræðilegri ráðgjöf við úrlausn mála á sviði eigna-, verktaka-, skipulags- og neytendaréttar.