Nýr upplýsingavefur og greining um orkuskipti
Fjölmennt var á fund Samtaka iðnaðarins, Landsvirkjunar, Samorku og Eflu í Kaldalóni í Hörpu þar sem opnaður var nýr upplýsingavefur orkuskipti.is. Á vefnum eru aðgengilegar upplýsingar um orkunotkun, orkuskipti og efnahagslegan ávinning Íslands af orkuskiptum. Á fundinum var kynnt ný greining Eflu um efnahagsleg áhrif orkuskipta.
- Markmið stjórnvalda er að Ísland nái kolefnishlutleysi og fullum orkuskiptum árið 2040 og verði þá óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja.
- Orkuskipti eru nauðsynleg til að ná þessum markmiðum og stuðla um leið að auknu orkuöryggi og orkusjálfstæði Íslands.
- Orkuskipti ganga út á að hætta að nota óendurnýjanlega orkugjafa eins og olíu og nota þess í stað endurnýjanlega orkugjafa eins og vatn, jarðvarma, vind og sól.
- Ísland notar um milljón tonn af olíu árlega sem kostar um 100 milljarða króna sem jafngildir verðmæti alls afla úr sjó við Ísland í 6 mánuði.
- Af innfluttri olíu skiptist notkunin í 52% fyrir flugvélar, 26% fyrir skip, 15% fyrir stærri ökutæki og 7% fyrir bíla.
- Jarðhitinn er helsti orkugjafi Íslands. Um 60% af frumorkunotkuninni er heitt vatn til húshitunar, baða og annarrar neyslu. Um 25% frumorkunotkunar er raforka sem ýmist er unnin úr vatnsafli eða jarðhita. 15% frumorkunotkunar er olía.
- Skipting orkunotkunar Íslands án húshitunar er 60% raforka og 40% olía. Ísland telst nettó innflytjandi á orku þar sem orkuframleiðsla hér á landi dugar ekki fyrir orkunotkun.
- Efnahagslegur ávinningur Íslands af orkuskiptum fram til ársins 2060 getur numið 1.400 milljörðum króna sem samsvarar fjármögnun heilbrigðiskerfisins í nær 5 ár.
- Heildarumfang fjárfestinga í raforkukerfinu vegna orkuskipta er talið vera um 800 milljarðar króna sem samsvarar byggingu 10 nýrra Landspítala.
- Orkuskiptin munu draga verulega úr losun Íslands eða sem nemur 88 milljónum tonna CO2 ígilda. Verðmæti þess eru um 500 milljarðar króna.
Á fundinum ræddu Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, og Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, um tilurð og markmið verkefnisins. Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI, opnaði vefinn og kynnti innihald hans. Haukur Ásberg Hilmarsson, hagfræðingur og orkumálaráðgjafi hjá Eflu, fór yfir greiningu um efnahagsleg áhrif orkuskipta á Ísland. Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku, var með samantekt. Í lok fundar flutti Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ávarp. Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku, var fundarstjo´ri.
Greining Eflu
Hér er hægt að nálgast greiningu Eflu.
Glærur fundarins
Hér er hægt að nálgast glærur fundarins.
Myndir
Á Facebook SI er hægt að nálgast fleiri myndir frá fundinum í Hörpu.
Myndir/BIG
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.
Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar.
Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI.
Haukur Ásberg Hilmarsson, hagfræðingur og orkumálaráðgjafi hjá Eflu.
Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, og Árni Sigurjónsson, formaður SI.
Umfjöllun
Vísir/Stöð 2, 18. október 2022.
mbl.is, 18. október 2022.
RÚV - kvöldfréttir, 18. október 2022.
Kastljós, 18. október 2022.
Morgunblaðið, 19. október 2022.
Fréttablaðið, 19. október 2022.
RÚV - Samfélagið, 19. október 2022.
Bylgjan - Reykjavík síðdegis, 19. október 2022.
Viðskiptablaðið, 19. október 2022.
Auglýsing