Fréttasafn



8. feb. 2023 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Orka og umhverfi

Olíuinnflutningur eykst þvert á markmið stjórnvalda

Þvert á markmið um að Ísland hætti að nota olíu fyrir árið 2040 stefnir í metár í innflutningi á olíu árið 2023. Olíunotkun Íslands náði hámarki árið 2018 þegar hún var um 1,5 milljónir tonna. Margt bendir til að olíunotkun nái sömu hæðum á þessu ári. Þetta segir Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI, í grein í ViðskiptaMogganum.

Í greininni kemur fram að heimurinn allur standi frammi fyrir því stóra verkefni að hægja á loftslagsbreytingum af mannavöldum. Notkun olíu sé stærsti losunarvaldurinn á heimsvísu en losun vegna olíunotkunar á Íslandi nemi 1,6 milljónum tonna á ári. Til samanburðar þá þýði markmið íslenskra stjórnvalda að draga þurfi úr losun um 1,3 milljónir tonna fyrir árið 2030. Sigríður segir að metnaðarfullum og um leið nauðsynlegum markmiðum þurfi að fylgja eftir með markvissum aðgerðum.

Met í olíuinnflutningi vegna aukins fjölda ferðamanna

Sigríður segir að í farþegaspá Isavia sé gert ráð fyrir að 7,8 milljónir farþega fari um Keflavíkurflugvöll á árinu sem sé þriðji mesti fjöldi farþega á einu ári frá upphafi. Þá sé því spáð að 2,2 milljónir ferðamanna komi til Íslands, sem nálgist farþegafjölda metársins 2018. Yfir 50% af olíunotkun Íslands komi til vegna flugsamgangna og hafi farþegafjöldi því mikil áhrif á olíunotkun landsins. Hún segir að miðað við spár um þróun á olíuverði á árinu megi gera ráð fyrir að um verði að ræða met í olíuinnflutningi í krónum talið, en innflutningur jarðefnaeldsneytis gæti numið yfir 130 milljörðum króna á árinu. 

Til mikils að vinna að markmið um olíulaust Ísland náist

Sigríður segir að aukning í olíunotkun gangi gegn loftslagsmarkmiðum Íslands en hafi einnig neikvæð áhrif á viðskiptajöfnuð. Þá hafi hækkanir á heimsmarkaðsverði á olíu áhrif á verðbólgu hér á landi. Það sé því til mikils að vinna fyrir samfélagið allt, bæði loftslag og efnahag, að markmið um olíulaust Ísland náist. Jafnframt tryggi það orkusjálfstæði og orkuöryggi en nágrannar okkar á meginlandinu hafa verið rækilega minntir á mikilvægi þess undanfarið ár.

Ferðaþjónusta og sjávarútvegur nýta olíu til að skapa verðmæti

Þá kemur fram í greininni að Ísland standi framarlega á heimsvísu í framleiðslu á endurnýjanlegum orkugjöfum. En þegar horft sé til heildarorkunotkunar Íslands megi sjá að stór hluti hennar byggist á olíu. Tvær af fjórum útflutningsstoðum Íslands nýti olíu til að skapa verðmæti fyrir þjóðarbúið, ferðaþjónusta og sjávarútvegur. Sé húshitun undanskilin stendur olía undir 40% af orkunotkun Íslands. Það hlutfall fer hækkandi með fjölgun ferðamanna. Sigríður segir að tvennt þurfi að koma til svo markmið um orkuskipti náist. Aukin innlend framleiðsla á grænni orku og áframhaldandi vinnsla til framleiðslu á grænu eldsneyti, svo sem vetni eða annars konar rafeldsneyti. Einnig þurfi að skapa einfalt og hvetjandi starfsumhverfi og tryggja innviði fyrir vetnis- og rafeldsneytisframleiðendur. 

Íþyngjandi leyfisveitingaferli

Sigríður segir að fjölmargir aðilar séu með slík verkefni í þróun hér á landi. Áratugar kyrrstaða í orkumálum og orkuöflun hér á landi hafi loks verið rofin með samþykkt rammaáætlunar á Alþingi vorið 2022. Leyfisveitingaferli séu hins vegar enn íþyngjandi en hafa þurfi hraðar hendur til að snúa við þeirri þróun sem blasi við, sem sé aukinn innflutningur á olíu og tilheyrandi aukning losunar. Skortur á grænni orku hafi einnig orðið til þess að grípa þurfti til skerðinga á raforku á síðustu árum sem leiddi af sér aukna olíunotkun.

Ekki skref í rétta átt

Í niðurlagi greinarinnar segir að Ísland geti orðið fyrsta landið í heiminum til að nota eingöngu græna, endurnýjanlega orku, í þágu samfélags, efnahags og umhverfis. Lausnirnar séu til og við þurfum að setja stóraukinn kraft í að innleiða þær. Til þess þurfi samhent átak stjórnvalda og atvinnulífs og hraða þurfi vegferðinni. Aukinn olíuinnflutningur sé ekki skref í rétta átt.

ViðskiptaMogginn, 8. febrúar 2023. 

VidskiptaMogginn-08-02-2023