Opið fyrir umsóknir í skrúðgarðyrkjunám
Félag skrúðgarðyrkjumeistara vekur athygli á skrúðgarðyrkjunámi Garðyrkjuskólans á Reykjum þar sem nú er opið fyrir umsóknir fyrir komandi skólaár. Umsóknarfrestur rennur út þann 26. maí næstkomandi.
Skrúðgarðyrkja er fjölbreytt og skapandi fag sem sameinar hönnun, umhirðu gróðurs, framkvæmdir og uppbyggingu vistlegra umhverfa. Námið hentar þeim sem hafa áhuga á náttúru, útivinnu, fagmennsku og því að skapa fallegt og lifandi umhverfi til framtíðar.
Félag skrúðgarðyrkjumeistara hvetur öll sem hafa áhuga á faginu til að kynna sér námið og sækja um. Mikil þörf er á faglærðu fólki í greininni og bíða fjölmörg spennandi tækifæri þeirra sem leggja stund á námið.
Nánari upplýsingar um námið og umsóknarferlið má finna á vef Fjölbrautarskóla Suðurlands:
https://www.fsu.is/is/namid/gardyrkjuskolinn-reykjum

