Opinn fundur SI og SSNE í Hofi á Akureyri
Samtök iðnaðarins og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra boða til opins hádegisverðarfundar í Hofi á Akureyri þriðjudaginn 9. september kl. 12-13 þar sem kastljósinu verður beint að atvinnumálum og innviðauppbyggingu.
Húsið opnar kl. 11.30 og verður boðið upp á súpu og brauð.
Dagskrá
- Opnun fundar - Árni Sigurjónsson, formaður SI
- Ávarp - Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri
- Stökkpallur inn í næsta hagvaxtarskeið - Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
- Sterkir innviðir fyrir öflugra atvinnulíf - Lára Halldóra Eiríksdóttir, formaður SSNE
- Fundarstjórn - Albertína Fr. Elíasdóttir, framkvæmdastjóri SSNE
Fundurinn er öllum opinn og verður einnig streymt.
Hér er hægt að skrá sig á fundinn.