Fréttasafn



11. maí 2026 Almennar fréttir Nýsköpun

Opnað fyrir tilnefningar fyrir Vaxtarsprotann 2026

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar fyrir Vaxtarsprotann 2026 sem afhentur verður í 20. sinn í byrjun september. Meginviðmið er vöxtur í söluveltu sprotafyrirtækis milli síðasta árs 2025 og ársins á undan 2024. Tilnefningu er hægt að senda til og með 31. ágúst

Skilyrði:

  • Frumkvöðull sé til staðar í fyrirtækinu
  • Fyrirtækið má ekki vera í meirihlutaeigu fyrirtækis á meðal 100 stærstu á Íslandi, fyrirtækis á aðallista Kauphallar eða vera sjálft á aðallista Kauphallar

Á þessari vefslóð er hægt að senda tilnefningu rafrænt. athugið að allar upphæðir þurfa að vera í íslenskum krónum:

https://www.si.is/vaxtarsprotinn

Það fyrirtæki sem sýnir mestan hlutfallslegan vöxt hlýtur nafnbótina Vaxtarsproti ársins. Einnig eru veittar sérstakar viðurkenningar til sprotafyrirtækja sem hafa sýnt mestan hlutfallslegan vöxt, annars vegar í flokki fyrirtækja sem velta á bilinu 10-100 milljónum króna og hins vegar sem velta á bilinu 100-1.000 milljónum króna. Veitt er sérstök viðurkenning til sprotafyrirtækja sem náð hafa þeim árangri á síðasta ári í fyrsta sinn að velta meira en einum milljarði króna. Við leitum því einnig eftir ábendingum um sprotafyrirtæki sem hafa náð því marki.

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Aðstandendur verkefnisins skipa dómnefnd sem sér um val á þeim fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningu og nafnbótina Vaxtarsproti ársins.

Eftirfarandi fyrirtæki hafa hlotið Vaxtarsprotann: Aldin Dynamics (2025), Abler (2024), Hopp (2023), Controlant (2022), 1939 Games (2021) Kerecis (2020), Carbon Recycling International (2019), Kaptio (2018), Kerecis (2017), Eimverk (2016), Kvikna (2015), DataMarket (2014), Meniga (2013), Valka (2012), Handpoint (2011), Nox Medical (2010), Mentor (2009), Mentor (2008) og Marorka (2007). 

Si_vaxtarsprotinn_2025-25Frá afhendingu Vaxtarsprotans 2025. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Svandís Unnur Sigurðardóttir frá Rannís, Sigurður Óli Sigurðsson frá Rannís, Birgir Jósafatsson frá Thor Ice Chilling Solutions, Sigurður Hannesson frá SI, Ester Ósk Pálsdóttir frá Thor Ice Chilling Solutions, Árni Sigurjónsson frá SI, Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra, Gunnar Steinn Valgarðsson frá Aldin Dynamics, Páll Arinbjarnar frá Aldin Dynamics, Erla Tinna Stefánsdóttir frá SI, Hrafntinna Viktoría Karlsdóttir frá HR og Ragnhildur Helgadóttir frá HR.