Fréttasafn



30. maí 2025 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Opnað fyrir tilnefningar í Vaxtarsprotann 2025

Opnað hefur verið fyrir innsendingar í Vaxtarsprotann 2025. Meginviðmið er vöxtur í söluveltu sprotafyrirtækis milli síðasta árs 2024 og ársins á undan 2023. Tilnefningu er hægt að senda til og með 31. ágúst. Vaxtarsprotinn verður afhentur 10. september kl. 9 í Flórunn í Grasagarðinum í Laugardal.

Skilyrði:

  • Frumkvöðull sé til staðar í fyrirtækinu
  • Fyrirtækið má ekki vera í meirihlutaeigu fyrirtækis á meðal 100 stærstu á Íslandi, fyrirtækis á aðallista Kauphallar eða vera sjálft á aðallista Kauphallar

Hér er hægt að senda tilnefningu rafrænt.

Það fyrirtæki sem sýnir mestan hlutfallslegan vöxt hlýtur nafnbótina Vaxtarsproti ársins. Einnig eru veittar sérstakar viðurkenningar til sprotafyrirtækja sem hafa sýnt mestan hlutfallslegan vöxt, annars vegar í flokki fyrirtækja sem velta á bilinu 10-100 milljónum króna og hins vegar sem velta á bilinu 100-1.000 milljónum króna. Veitt er sérstök viðurkenning til sprotafyrirtækja sem náð hafa þeim árangri á síðasta ári í fyrsta sinn að velta meira en einum milljarði króna. Við leitum því einnig eftir ábendingum um sprotafyrirtæki sem hafa náð því marki.

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Aðstandendur verkefnisins skipa dómnefnd sem sér um val á þeim fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningu og nafnbótina Vaxtarsproti ársins.

Það verður í 19. skipti sem Vaxtarsprotinn verður afhentur en eftirfarandi fyrirtæki hafa hlotið Vaxtarsprotann: Abler (2024), Hopp (2023), Controlant (2022), 1939 Games (2021) Kerecis (2020), Carbon Recycling International (2019), Kaptio (2018), Kerecis (2017), Eimverk (2016), Kvikna (2015), DataMarket (2014), Meniga (2013), Valka (2012), Handpoint (2011), Nox Medical (2010), Mentor (2009), Mentor (2008) og Marorka (2007). 

 Si_vaxtarsprotinn_2024-24_1748598231582Frá afhendingu Vaxtarsprotans 2024.