Orkuskiptavef var ætlað að greiða úr upplýsingaóreiðu
Vefurinn orkuskipti.is er til umræðu í Grænvarpinu sem er hlaðvarpsþáttur Landsvirkjunar. Þar ræðir Þóra Arnórsdóttir hjá Landsvirkjun við Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI, og Hauk Ásberg Hilmarsson hjá Landsvirkjun um vefinn sem fjallar um það hvernig Íslendingar geta skipt út milljón tonnum af olíu á ári fyrir loftslagsmarkmið, orkuöryggi, hreinna loft og orkusjálfstæði.
Í máli Sigríðar kemur meðal annars fram að hugmyndin að vefnum hafi sprottið hjá Samtökum iðnaðarins sumarið 2022 þar sem hafði verið mikil umræða um orkuskipti, af hverju væri verið að fara í orkuskipti og hver raforkuþörfin væri fyrir orkuskiptin. „Umræðan var ennþá í skotgröfum þá sem mér finnst hafa talsvert lagast síðastliðin þrjú ár, meðal annars vegna þessa verkefnis ætla ég að vona. Þá snérist þetta um að tala til almennings og útskýra á mannamáli hvað eru orkuskipti, af hverju tölum við um raforkuþörf vegna orkuskipta, hver er raforkuþörf til framtíðar bæði vegna orkuskipta og annarra þátta. Aðeins að grisja og greiða úr ákveðinni upplýsingaóreiðu sem var í gangi á þessum tíma. Við leituðum fyrst til ykkar og svo komu fleiri góðir samstarfsaðilar að verkefninu.“
Sigríður segir að vefurinn hafi verið uppfærður síðastliðið haust þar sem farið var dýpra í ákveðna þætti í tengslum við orkuskipti. „Við töldum mikilvægt ásamt ykkur og öðrum samstarfsaðilum þessa verkefnis að setja upplýsingar fram á mannamáli, setja tölur í einfaldan búning og reyna þar með að fá bæði almenning og stjórnmálin ekki síst með í þessa vegferð sem er auðvitað gríðarlega mikilvægt til lengri tíma fyrir Ísland og til langrar framtíðar.“
Sigríður segir jafnframt að það sé margt að breytast í heimsmyndinni í kringum okkur, ytri aðstæður hafi verið að breytast og pólitíkin bæði í Bandaríkjunum og Evrópu, þannig að umræða um orkuskipti sé ekki eins ofarlega á baugi núna og hafi verið á árunum 2022, 2023 og 2024.
Á vef Landsvirkjunar er hægt að hlusta á hlaðvarpsþáttinn.
Grænvarpið, 4. júní 2025.