Fréttasafn



8. feb. 2024 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Óskað eftir tilnefningum fyrir Kuðunginn

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur óskað eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári eru þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2023. Kuðungurinn verður afhentur í tengslum við Dag umhverfisins og hefur sú breyting verið gerð á að tilnefningaflokkarnir eru nú tveir, fyrir stærri og minni fyrirtæki.

Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að óskað sé eftir því að greinargerð fylgi með tilnefningunni, en við mat á viðurkenningarhöfum sé horft til eftirfarandi þátta: Umhverfisstjórnunar, innleiðingar nýjunga í umhverfisvernd, losun gróðurhúsalofttegunda, minni efnanotkunar, lágmörkunar úrgangs, mengunarvarna, umhverfisvænni þróun á vöru eða þjónustu, framlags til umhverfismála, samstarfs í umhverfismálum og vinnuumhverfis.

Fyrirtæki og stofnanir geta bæði tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Tillögur skulu berast umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu eigi síðar en 11. mars nk. merktar „Kuðungurinn“ á netfangið urn@urn.is eða með pósti í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Borgartúni 26, 105 Reykjavík.

Á síðasta ári hlutu fyrirtækin Jáverk og Gefn viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á árinu 2022. Á myndinni hér fyrir ofan eru fulltrúar Jáverks að taka við viðurkenningunni.