Fréttasafn



15. sep. 2023 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Óskað eftir tilnefningum fyrir Umhverfisverðlaun atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög óska eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins fyrir 13. október. Verðlaunin verða veitt af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem haldinn verður 21. nóvember í Hörpu. Hér er hægt að tilnefna fyrirtæki.

Veitt eru tvenn verðlaun; umhverfisfyrirtæki ársins og framtak ársins. Dómnefnd velur úr tilnefningum en til að tilnefning teljist gild þurfa fyrirtæki að uppfylla sett viðmið og rökstuðningur þarf að fylgja. Tilnefna þarf fyrirtæki sérstaklega undir hverjum flokki en einnig er hægt að tilnefna fyrirtæki fyrir báða flokka. Einungis er hægt að tilnefna skráð aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins.

Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa auk Samtaka atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu.

Hér er hægt að skrá sig á Umhverfisdag atvinnulífsins.

Nordural_1_1694784102882Norðurál hlaut viðurkenninguna á síðasta ári. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Sólveig Kr. Bergmann, yfirmaður samskipta, Steinunn Dögg Steinsen, yfirmaður umhverfis- og öryggismála og Gunnar Guðlaugsson forstjóri.