Fréttasafn



12. ágú. 2021 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Óskað eftir tilnefningum fyrir Vaxtarsprotann 2021

Óskað er eftir tilnefningum fyrir Vaxtarsprotann 2021 sem afhentur verður 2. september. Tilnefningu er hægt að senda inn með rafrænum hætti hér til 26. ágúst.

Meginviðmið er vöxtur í söluveltu sprotafyrirtækis milli síðasta árs og ársins á undan. Skilyrði er að frumkvöðull sé til staðar í fyrirtækinu og fyrirtækið má ekki vera í meirihlutaeigu fyrirtækis á meðal 100 stærstu á Íslandi, fyrirtækis á aðallista Kauphallar eða vera sjálft á aðallista Kauphallar.

Það fyrirtæki sem sýnir mestan hlutfallslegan vöxt hlýtur nafnbótina Vaxtarsproti ársins. Fyrirtækið fær til varðveislu farandgrip með áletrun og sérstakan verðlaunaskjöld til eignar. Einnig eru veittar sérstakar viðurkenningar til þeirra tveggja sprotafyrirtækja sem hafa sýnt mestan hlutfallslegan vöxt, annars vegar í flokki fyrirtækja sem velta á bilinu 10-100 millj. kr. og hins vegar sem velta á bilinu 100-1.000 millj. kr.

Veitt er sérstök viðurkenning til sprotafyrirtækja sem náð hafa þeim árangri á síðasta ári í fyrsta sinn að velta meira en einum milljarði króna. Við leitum því einnig eftir ábendingum um sprotafyrirtæki sem hafa náð því marki.

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Aðstandendur verkefnisins skipa dómnefnd sem sér um val á þeim fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningu og nafnbótina Vaxtarsproti ársins. 

Eftirfarandi fyrirtæki hafa hlotið Vaxtarsprotann: Kerecis (2021), Carbon Recycling International (2019), Kaptio (2018), Kerecis (2017), Eimverk (2016), Kvikna (2015), DataMarket (2014), Meniga (2013), Valka (2012), Handpoint (2011), Nox Medical (2010), Mentor (2009), Mentor (2008) og Marorka (2007).

Á síðasta ári var Vaxtarsprotinn 2020 afhentur í grasagarðinum í Laugardal. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra, Ingólfur Guðmundsson, forstjóri CRI, Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis, Sigurður Halldórsson, framkvæmdastjóri Pure North Recycling, og Árni Sigurjónsson, formaður SI.