Fréttasafn



14. apr. 2023 Almennar fréttir Nýsköpun

Óskað eftir tilnefningum í nýtt Vísinda- og nýsköpunarráð

Á vef Stjórnarráðsins er óskað eftir tilnefningum fyrir fulltrúa í nýtt Vísinda- og nýsköpunarráð. Nefndin starfar á grundvelli laga um Vísinda- og nýsköpunarráð sem tóku gildi þann 1. apríl sl. Markmið laganna er að efla stefnumótun og samhæfingu á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar hér á landi svo að styrkja megi íslenskt þekkingarsamfélag og auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Tilnefningar skal senda í síðasta lagi 23. apríl á netfangið for@for.is.Tillögum á að fylgja upplýsingar um starfsferil viðkomandi. 

Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að við tilnefningu fulltrúa í Vísinda- og nýsköpunarráð skuli tilnefningarnefndin hafa hlutverk ráðsins að leiðarljósi og leggja áherslu á að það sé skipað fólki með yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á sviði vísinda, tækniþróunar og nýsköpunar. Forsætisráðherra, í samráði við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, skipar níu fulltrúa í ráðið á grundvelli tillagna tilnefningarnefndar og jafn marga til vara.

Formaður tilnefningarnefndarinnar er Margrét Helga Ögmundsdóttir, dósent við Háskóla Íslands, og er hún skipuð án tilnefningar. Aðrir í nefndinni eru Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, en þau eru bæði tilnefnd af Samstarfsnefnd háskólastigsins, Róbert Farestveit sviðsstjóri hagfræði- og greiningarsviðs ASÍ, tilnefndur af ASÍ og Sigríður Mogensen sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins.