Fréttasafn



21. ágú. 2024 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Mannvirki Orka og umhverfi

Óskað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök óska eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins fyrir 12. september 2024. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem fer fram 22. október.

Veitt eru tvenn verðlaun; umhverfisfyrirtæki ársins og framtak ársins. Dómnefnd velur úr tilnefningum en til að tilnefning teljist gild þurfa fyrirtæki að uppfylla sett viðmið og rökstuðningur þarf að fylgja.

Tilnefna þarf fyrirtæki sérstaklega undir hverjum flokki en einnig er hægt að tilnefna fyrirtæki fyrir báða flokka.

Athugið að einungis er hægt að tilnefna skráð aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins.

Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu.

Hér er hægt að tilnefna fyrirtæki.

Myndin er frá afhendingu Umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2023 þegar CRI fékk viðurkenningu fyrir framtak ársins.