Fréttasafn



3. jún. 2026 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Óstöðugleiki er vandamál og skýrslan dregur það vel fram

Ég vil fagna þessari umræðu, hún er mjög mikilvæg á þessum tímapunkti þegar er að harðna á dalnum hjá okkur í íslensku hagkerfi. Þetta sagði Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, meðal annars í umræðum um vinnumarkaður og samkeppnishæfni í breyttu gjaldmiðlaumhverfi í pallborði á ráðstefnu sem haldin var í Hörpu í tilefni af útgáfu skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Auk Sigurðar voru í pallborðinu Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, Gylfi Zoega, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands, og Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbanka Íslands. 

Sigurður sagði skýrsluna vera ágæta að mörgu leyti en samt takmörkuð að sumu leyti. „Ég vona samt að hún geti nýst engu að síður sem góður grundvöllur að umræðunni. Þegar við hjá Samtökum iðnaðarins og iðnrekendur hugsa um samkeppnishæfni þá er það ekki bara gjaldmiðillinn heldur eru það miklu fleiri þættir. Það eru menntamál og mannauðsmál, það er aðgangur að fólki með réttu hæfnina. Það snýst um innviði, gæði þeirra. Það snýst um umgjörð nýsköpunar. Það snýst um regluverkið, eftirliti, skattlagningu og fleira í þeim dúr. Ýmsum ferlum, orkumál og ég gæti haldið áfram.“ Hann sagði samkeppnishæfni byggjast upp á mjög mörgum þáttum og að hún byggist líka upp á stöðunni á vinnumarkaði. „Vandamálið hjá okkur er óstöðugleiki og mér finnst skýrslan draga það mjög vel fram. Ég held að skýrslan sé líka heiðarleg með það að óstöðugleikinn kemur ekki eingöngu eða ekki vegna gjaldmiðilsins sem slíks heldur ýmsum öðrum þáttum og þar er umgjörð vinnumarkaðarins veigamesti þátturinn sem að skýrslan fjallar um.“

Atvinnustefna góð leið til að efla samkeppnishæfni til lengri tíma

Sigurður sagði jafnframt að í skýrslunni væri líka fjallað um ríkisfjármálin og hvernig þau hafi kannski aukið á sveiflurnar frekar en hitt. „Þannig að þarna eru þættir sem þarf að hugsa um og ég held að ríkisstjórnin sé að taka á sumum þessum málum mjög vel og mig langar til að nefna atvinnustefnuna í því samhengi sem að okkur hjá Samtökum iðnaðarins finnst mjög góð leið til þess að efla samkeppnishæfni til lengri tíma þar sem er farið í ýmsa þætti eins og nýsköpun, orkumálin og fleira. Það sem atvinnurekendur hugsa allavega og það sem við heyrum miklu fremur varðandi rekstrarumhverfið að það snýr að fyrirsjáanleika, það snýr að reglusetningunni. Það er kannski verið að setja á lög sem taka gildi með skömmum fyrirvara, breyta umhverfinu. Það eru svona þættir sem vega þyngra allavega núna. Ef við horfum á nafngengi krónu þá hefur það verið mjög stöðugt um nokkurra ára skeið. Þannig að ef við hefðum setið hérna fyrir 10 árum síðan þá hefðu okkar félagsmenn talað miklu meira um krónuna sem vandamál í sínum rekstri en núna höfum við ekki heyrt marga tala um það upp á síðkastið en auðvitað er staða fyrirtækjanna mjög ólík.“

Á mbl.is er hægt að nálgast upptöku af ráðstefnunni. Pallborðsumræðurnar um vinnumarkaður og samkeppnishæfni í breyttu gjaldmiðlaumhverfi hefjast á mín. -30.02.

Gjaldmidlaskyrsla_2