Fréttasafn



4. okt. 2021 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Prentmet Oddi bætir við sig stimplagerð

Prentmet Oddi ehf. hefur tekið við framleiðslu á stimplum Stimplagerðarinnar. Í tilkynningu kemur fram að Stimplagerðin hafi verið í rekstri síðan 1955 og sé elsta stimplagerð landsins og leiðandi í sölu stimpla. Hjónin Óðinn Geirsson og Aðalheiður Maack keyptu fyrirtækið árið 1976 af stofnandanum, Bergi Thorberg prentara, og hafa því rekið það í um 45 ár.

Prentmet og nú Prentmet Oddi var stofnað árið 1992 og er rekið af þeim hjónum Guðmundi Ragnari Guðmundssyni og Ingibjörgu Steinunni Ingjaldsdóttir. Í tilkynningu kemur fram að Prentmet Oddi prenti umbúðir, bækur, allt almennt prentverk, límmiða og gerir stimpla.