Prentmet Oddi fjárfestir í nýrri bókalínu
Prentmet Oddi hefur fjárfest og tekið í notkun nýja bókalínu. Á vef prentsmiðjunnar kemur fram að með nýrri bókalínu sé hægt að bjóða upp á mun skemmri vinnslutíma á harðspjaldabókum. Þegar fyrrum eigendur Odda ákváðu að selja bókalínuna sína úr landi árið 2018 þurftu bókaútgefendur að bregðast við þeirri stöðu. Með þessu hafi ekki lengur verið afkastageta hjá innlendum prentsmiðjum til að prenta bækur með sama hraða og áður hafði boðist. Þar til nú sé aftur orðið raunhæft að prenta bækur með skömmum fyrirvara. Þá segir að það sé von prentsmiðjunnar að innlendir bókaútgefendur nýti sér þennan valkost og ákveði að taka endurprentanir aftur heim. Prentmet Oddi hafi á að skipa mjög reynslumiklu starfsfólki í vinnslu bóka og nú einnig sterkum tækjakosti til að fullvinna bækur.
Á myndinni eru, talið frá vinstri, Hjörtur Skúlason framleiðslustjóri og bókbindararnir Telma Dögg Ólafsdóttir og Georg Pétur Kristjánsson ásamt Agli Njálssyni vélamanni.