Ráðstefna um brunavarnir og öryggi
Ráðstefnan Brunavarnir og öryggi til framtíðar - samhæfð viðbrögð, lagaumgjörð og hlutverk stofnana og atvinnulífs fer fram fimmtudaginn 4. september kl. 9:00-10:30 á Grand Hótel Reykjavík í salnum Háteig á 4. hæð. Léttar morgunveitingar frá klukkan 8:30.Fimm ár eru liðin frá eldsvoðanum á Bræðraborgarstíg þar sem veikleikar í kerfum og regluverki komu skýrt í ljós. Í kjölfarið hófst víðtæk umbótavinna þar sem stofnanir og atvinnulíf tóku höndum saman með það markmið að efla öryggi og bæta eftirlit. Að ráðstefnunni standa Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Samtök iðnaðarins.
Farið verður yfir helstu lærdóma síðustu fimm ára, hvaða breytingar hafa orðið á regluverki, ábyrgðarskiptingu og framtíðaráskoranir í brunavörnum.
Meðal spurninga sem leitast verður við að svara á ráðstefnunni:
- Hvernig stöndum við á Íslandi þegar kemur að brunvörnum?
- Hvert er umfang bruna og brunatjóna á Íslandi?
- Hvað eru tækifæri til að gera betur á þessu sviði hér á landi?
Fyrirlesarar á ráðstefnunni verða:
- Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra
- Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
- Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og framkvæmdastjóri Almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins - Hvað ef ég hefði…? - Samfélagsleg ábyrgð okkar allra
- Regína Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri brunavarna- og markaðseftirlitssviðs HMS - Bræðraborgarstígur fimm árum síðar - frá harmleik til umbóta.
- Svali H. Björgvinsson, framkvæmdastjóri markaðsmála og viðskiptaþróunar hjá Sjóvá.
- Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri fasteignasviðs HMS - Brunabótamat - öryggi almennings vegna fjárhagslegs tjóns af völdum bruna.
- Guðni I. Pálsson, brunahönnuður hjá COWI, Brunahönnun bygginga - lærdómur, áskoranir og tækifæri
- Fundarstjóri: Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF
Hér er hægt að skrá sig á ráðstefnuna.