Ræða á kraftmikið samstarf á ársfundi Grænvangs
Ársfundur Grænvangs fer fram 3. september kl. 14-16 í hátíðarsal Grósku undir yfirskriftinni Samstarf til framtíðar - öflugra Ísland. Á tímum örra breytinga og nýrra tækifæra ætlum við að ræða hvernig kraftmikið samstarf stjórnvalda og atvinnulífs getur lagt grunninn að samkeppnishæfni til framtíðar, öruggu orkukerfi og markvissum loftslagslausnum. Fundurinn verður vettvangur fyrir hugmyndaauðgi, hagnýtar lausnir og innblástur til að takast á við áskoranir morgundagsins – saman.
Dagskrá
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og formaður stjórnar Grænvangs, býður gesti velkomna.
- Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og verndari Grænvangs, flytur opnunarávarp.
- Nana Bule, fyrrum forstjóri Microsoft í Danmörku, segir frá samstarfshópi stjórnvalda og atvinnulífs, „Mere sol og vind på land,“ sem var 9 mánaða átaksverkefni sem hún stýrði og skilaði 27 tillögum til ríkisstjórnar Danmerkur í orkumálum. Hægt er að lesa meira um verkefnið hér
- Katrine Thomsen, deildarstjóri rannsókna og jarðlaga hjá loftslags-, orku- og veituráðuneyti Danmerkur, segir okkur frá langtíma markmiðum og stefnumótun danska ríkisins í kolefnisstjórnun.
- Hringborðsumræður þar sem íslensk áhrifafólk mun velta upp spurningum eins og hvert við erum komin í grænu umbreytingunni og hvert við stefnum? Hvað getum við íslendingar lært af öðrum? Hvernig við tryggjum samkeppnishæfni samhliða grænni umbreytingu? Hvernig tryggjum við samstarf og samtal atvinnulífs og stjórnvalda um málaflokkinn? Þátttakendur í hringborðsumræðunum verða:
- Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs hjá Samtökum iðnaðarins
- Jóna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun
- Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
- Sveinbjörn Finnsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar
- Sveinn Margeirsson, framkvæmdastjóri nýsköpunar og loftslagsmála hjá Brim
- Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs, mun stýra umræðum
- Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, flytur lokaorð.
Fundurinn fer fram bæði á ensku og íslensku.
Að lokinni dagskrá er fundargestum boðið að þiggja léttar veitingar.
Hér er hægt að skrá sig.