Fréttasafn



3. sep. 2025 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Ræða á kraftmikið samstarf á ársfundi Grænvangs í dag

Ársfundur Grænvangs fer fram 3. september kl. 14-16 í hátíðarsal Grósku. Í tilefni þess rita Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI og formaður Grænvangs, og Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs, grein á Vísi með yfirskriftinni Samstarf um loftslagsmál og grænar lausnir. Í grein sinni segja þau meðal annars að á sama tíma og heimurinn glími við óstöðugleika í alþjóðamálum, orkumörkuðum og viðskiptum, vaxi þörfin fyrir raunverulegar loftslagsaðgerðir. „Við höfum mikil tækifæri til að ná árangri. Reynslan sýnir að þegar við hér á landi höfum haft hugrekki til að horfa lengra og ráðast í djörf skref, hefur það skapað okkur forskot sem enginn efast um í dag.“ Þau segja að á fundinum sem ber yfirskriftina Samstarf til framtíðar – öflugt Ísland verði rætt um framtíðina í þessum málaflokki; hvernig kraftmikið samstarf stjórnvalda og atvinnulífs geti lagt grunn að samkeppnishæfni til framtíðar, öruggu orkukerfi og markvissum loftslagslausnum.

Dagskrá ársfundarins:

  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og formaður stjórnar Grænvangs, býður gesti velkomna.
  • Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og verndari Grænvangs, flytur opnunarávarp.
  • Nana Bule, fyrrum forstjóri Microsoft í Danmörku, segir frá samstarfshópi stjórnvalda og atvinnulífs, „Mere sol og vind på land,“ sem var 9 mánaða átaksverkefni sem hún stýrði og skilaði 27 tillögum til ríkisstjórnar Danmerkur í orkumálum. Hægt er að lesa meira um verkefnið hér
  • Katrine Thomsen, deildarstjóri rannsókna og jarðlaga hjá loftslags-, orku- og veituráðuneyti Danmerkur, segir okkur frá langtíma markmiðum og stefnumótun danska ríkisins í kolefnisstjórnun.
  • Hringborðsumræður þar sem íslensk áhrifafólk mun velta upp spurningum eins og hvert við erum komin í grænu umbreytingunni og hvert við stefnum? Hvað getum við íslendingar lært af öðrum? Hvernig við tryggjum samkeppnishæfni samhliða grænni umbreytingu? Hvernig tryggjum við samstarf og samtal atvinnulífs og stjórnvalda um málaflokkinn? Þátttakendur í hringborðsumræðunum verða:
  • Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs hjá Samtökum iðnaðarins
  • Jóna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun
  • Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
  • Sveinbjörn Finnsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar
  • Sveinn Margeirsson, framkvæmdastjóri nýsköpunar og loftslagsmála hjá Brim
  • Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs, mun stýra umræðum
  • Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, flytur lokaorð.

Fundurinn fer fram bæði á ensku og íslensku.

Að lokinni dagskrá er fundargestum boðið að þiggja léttar veitingar.

Hér er hægt að skrá sig.