Fréttasafn



11. nóv. 2022 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

Rafræn skráning byggingarstjóra og iðnmeistara

Nú er hægt að skrá byggingastjóra og iðnmeistara rafrænt á vef Reykjavíkurborgar. Þetta er fyrsti hluti vegferðar Reykjavíkurborgar að rafrænum byggingarleyfisumsóknum. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar.

Skráningin fer fram á Mínum síðum, þar eru skjölin fyllt út og loks undirrituð rafrænt. Upplýsingar eru sóttar úr réttindagátt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þannig að einungis er hægt að skrá einstaklinga með viðeigandi réttindi byggingarstjóra og iðnmeistara.

Ef breytingar verða á byggingarstjórum eða iðnmeisturum þarf enn sem komið er að tilkynna það á pappír. Unnið er að því að gera þessa skráningu líka rafræna. Stefnt er að því að umsókn um byggingarleyfi verði alfarið orðin rafræn fyrir lok þessa árs.