Fréttasafn



13. maí 2024 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Rauði þráðurinn er að auka framleiðni

„Við getum kallað þetta iðnaðarstefnu og þetta er ekki áætlunarbúskapur heldur í hvaða átt erum við að stefna til næstu ára og áratuga og hvað þarf að gerast svo við komumst þangað. Rauði þráðurinn í þessu öllu er að auka framleiðni“, segir Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI, í hlaðvarpinu Ræðum það sem er hlaðvarpsþáttur Andrésar Jónssonar hjá Góðum samskiptum. Sigríður er gestur þáttarins ásamt Kristrúnu Frostadóttur, formanni Samfylkingarinnar, og Róberti Farestveit hjá ASÍ.
Í þættinum kemur meðal annars fram að það hafi skort framtíðarsýn um uppbyggingu íslensks atvinnulífs og Samtök iðnaðarins hafi lengi hvatt til þess að mótuð verði atvinnustefna fyrir Ísland. Sigríður segir að nokkrir þættir myndu ráða úrslitum um framtíðarlífskjör á Íslandi og að það væri meðal annars fjárfesting í rannsóknum og þróun, þ.e.a.s. nýsköpun, vegna þess að fjárfesting í nýsköpun skapi háframleiðnistörf. Einnig skipti miklu máli hvernig skilyrði og umgjörð útflutningsgreina þróist. Mikilvægt sé að skapa skilyrði fyrir sterkar útflutningsgreinar. Sigríður hrósar ríkisstjórninni fyrir að auka skattahvata vegna rannsókna og þróunar á síðasta kjörtímabili og segist vonast eftir því að atvinnustefna til framtíðar verði á dagskrá í næstu Alþingiskosningum.
Hér er hægt að nálgast hlaðvarpið.