Ríki eru upptekin af því hvernig þau geta betur búið sig undir áföll
Þegar Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, er spurður í Vikulokunum á Rás 1 um helgina hvort það sé meiri svartsýni ríkjandi meðal stjórnenda í iðnaði líkt og komi fram í nýrri greiningu SI um stöðu efnahagslífsins segir hann meiri svartsýni vera líkt og könnunin beri með sér. „Það er viðsnúningur frá fyrra ári. Í fyrra voru væntingar stjórnenda um að ástandið mundi batna en núna er ekkert slíkt í kortunum að mati sömu aðila. Þetta segir sína sögu. Núna eru um fjórðungur aðspurðra sem sjá fyrir sér að fækka starfsfólki á næstunni.“
Sigurður segir að hagkerfið sé að kólna verulega. „Við erum með háa og þráláta verðbólga á breiðum grunni, atvinnuleysi er að aukast og og óvissa og svartsýni er að aukast. Þetta er ekki góð blanda. Það er vandséð hvernig við eigum að snúa okkur út úr þessu. Við verðum auðvitað að hafa meira fyrir því á svona tímum að ná árangri heldur en þegar allt leikur í lyndi og núna þegar ríkir mikil óvissa í heimsmálunum og hefur gert um nokkurt skeið.“ Hann segi meiri spennu vera í samskiptum ríkja sem brjótist meðal annars fram í tollastríði og átökum. „Það er miklu meiri áhersla á öryggis- og varnarmál og viðnámsþrótt. Ríki eru upptekin eðli máls samkvæmt af því hvernig þau geti betur búið sig undir áföll af völdum náttúruhamfara eða mannavöldum og það þurfum við að gera líka. Þannig að við þurfum að klæða okkur eftir veðri. Nú er mjög kalt í heimsmálunum þannig að við þurfum að taka mið af því í því sem við gerum.“
Auk Sigurðar eru Magnús Árni Skjöld Magnússon, prófessor í stjórnmálafræði og formaður Evrópuhreyfingarinnar, og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður VG, viðmælendur þáttastjórnandans Höskuldar Kára Schram. Þau ræddu auk efnahagsmála, Evrópusambandsmál og boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hér er hægt að hlusta á þáttinn í heild sinni.
RÚV, 21. mars 2026.

