Fréttasafn



15. jún. 2026 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Ríkið gæti aðhalds en leggi ekki viðbótarálögur á fólk og fyrirtæki

„Ég held að það sé algjörlega viðbúið að slíkur viðbótarskattur komi úr vasa heimila og fyrirtækja. Skattar sem lagðir eru á fyrirtæki auka kostnað þeirra og enda gjarnan hjá viðskiptavinum þeirra á endanum. Með sama hætti og breytingar á virðisaukaskatti til hækkunar eða lækkunar skila vöruverðsbreytingum til hækkunar eða lækkunar. Þetta virkar ekkert öðruvísi og algjörlega viðbúið að þetta endi á heimilunum og fyrirtækjunum,“ segir Þorsteinn Víglundsson, formaður SI, í fréttum Sýnar um áformaðar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar. Hann segir að nú þegar sé um erfiða stöðu að ræða fyrir byggingargeirann og telur að aukin skattheimta muni ekki bæta þar úr og reiknar með enn frekari kólnun á komandi misserum. „Það er viðkvæm staða núna á byggingamarkaði og þar er hvers kyns hækkun á fjármögnunarkostnaði ofan í þann samdrátt sem þar er að eiga sér stað mjög óheppileg og því til viðbótar áformar ríkisstjórnin að gera enn frekari breytingar til lækkunar á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu á byggingarstað sem er bein kostnaðaraukning á íbúðarhúsnæði við mjög erfiðar kringumstæður.“

Mikil vonbrigði

Í frétt Sýnar kemur fram að Þorsteinn segir það mikil vonbrigði að ríkisstjórnin hafi ekki brugðist við þeirri gagnrýni sem spratt upp þegar fjármálaáætlun var kynnt í vor og að skattar og álögur séu nú þegar hærri en í samanburðarlöndum Íslands. „Sér í lagi þegar horft er til þess að það er að teiknast upp mun erfiðara efnahagsástand en gert var ráð fyrir. Við þessar kringumstæður er bara mikilvægt að ríkið gæti aðhalds í eigin rekstri en leggi ekki viðbótarálögur á fyrirtæki og heimili. Þegar þessi ríkisstjórn var mynduð og þá var talað um stóraukið aðhald í ríkisrekstri, en því miður virðumst við vera að sjá fyrst og fremst stórauknar álögur á fólk og fyrirtæki og mjög víðtækar skattahækkanir sem gripið hefur verið til núna á þessu eina og hálfa ári sem þessi stjórn hefur verið við völd.“

Á vef Vísis er hægt að lesa fréttina í heild sinni.

Sýn/Vísir, 14. júní 2026.