SAFL gera athugasemdir við framkvæmd ESA-dagsins á Íslandi
Samtök fyrirtækja í landbúnaði, SAFL, hafa sent Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, formlegt bréf þar sem gerðar eru athugasemdir við framkvæmd ESA-dagsins sem haldinn var í Reykjavík 8. maí 2025. Samtökin telja umræðuna sem fór fram á viðburðinum hafa verið einhliða og telja einnig umhugsunarvert að rangfærslur sem þar komu fram hafi ekki verið leiðréttar. Slík framkvæmd sé í andstöðu við yfirlýst markmið ESA um heiðarleika, gagnsæi og fagmennsku.
Rangfærslur ekki leiðréttar af fulltrúum ESA
Í bréfinu er m.a. vísað til umræðu sem átti sér stað um tollflokkun á pizzaosti, þar sem framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, sem á aðild að málinu, hélt því fram opinberlega að ESA hefði þegar úrskurðað í málinu. Samtökin benda á að þetta sé rangt, en það rétta er að ESA hefur sent íslenskum stjórnvöldum formlegt áminningarbréf vegna málsins, sem felur ekki í sér endanlega ákvörðun né úrskurð. Enginn fulltrúa ESA sem tóku þátt í umræðunum hafi brugðist við rangfærslunum og leiðrétt þær þótt fullt tilefni hafi verið til.
Skortur á málefnalegri umræðu um landbúnað
Lýsa SAFL einnig yfir áhyggjum af einhliða umfjöllun um samspil landbúnaðar og EES-samningsins. Í bréfinu kemur fram að sumir pallborðsgestir séu þekktir fyrir gagnrýna afstöðu gagnvart núverandi reglum um landbúnaðarframleiðslu á Íslandi og hafi skort mótvægissjónarmið við umræður þeirra. Þar hafi því mismunandi sjónarmiða ekki verið gætt.
Er jafnframt vísað til lögfræðilegrar álitsgerðar frá Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, sem tekur af tvímæli um að landbúnaðarframleiðsla falli ekki undir EES-samninginn og Ísland sé því ekki bundið af ákvæðum hans við skipulag og umgjörð hennar. Undirstrikar það mikilvægi þess að rétt sé farið með staðreyndir í opinberri umræðu um tengsl landbúnaðar og EES-samningsins.
Óskað skýringa frá ESA
Í niðurlagi bréfsins óska SAFL eftir að ESA bregðist við framkomnum athugasemdum.Samtökin minna á að ESA gegnir mikilvægu hlutverki í framkvæmd EES-samningsins og að traust og jafnræði sjónarmiða séu forsenda lýðræðislegrar umræðu og virkrar þátttöku hagsmunaaðila.
Samandregið
Framsetning opinberra viðburða á borð við ESA-daginn skiptir miklu máli fyrir traust og gagnsæi í samspili íslenskra hagsmunaaðila og alþjóðlegra stofnana. SAFL leggja áherslu á að ESA verði að standa vörð um hlutleysi sitt og fagmennsku í öllum samskiptum við almenning og aðila í atvinnulífinu, ekki síst þegar um er að ræða viðkvæm og mikilvæg málefni sem varða íslenskan landbúnað og tollamál. Það er í samræmi við hagsmuni íslenskra framleiðenda og mikilvægt fyrir virkt, réttlátt og gagnsætt regluumhverfi – sem Samtök fyrirtækja í landbúnaði leggja áherslu á að sé til staðar.
Hér er hægt að nálgast bréf SAFL.