Samræmt eftirlit er betra eftirlit að mati SVÞ, SAF og SI
Það styttist í sumarhlé Alþingis og mörg mál keppast nú um athygli þingmanna og fjölmiðla. Sum þeirra vekja meiri hávaða en önnur. Eitt þeirra, sem hefur kannski ekki fengið þá athygli sem það verðskuldar, varðar framtíð heilbrigðiseftirlits í landinu. Þar er tekist á um breytingar sem geta skipt verulegu máli fyrir fyrirtæki, almenning og stjórnsýsluna sjálfa. Þetta segja Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, í grein á Vísi undir yfirskriftinni Samræmt eftirlit er betra eftirlit.
Þeir segja að SVÞ, SAF og SI styðji þær breytingar sem ætlunin sé að gera á heilbrigðiseftirliti og telja mikilvægt að þær komist til framkvæmda. Að sama skapi hafi samtökin lagt áherslu á að vandað verði til verka. Jafnframt segja þeir að samtökin séu ekki að öllu leyti sammála um önnur atriði þingmálanna. Þau séu þó sammála um meginatriðið: að breytingar á stjórnskipulagi eftirlitsins þurfi að ná fram að ganga. Lagabreytingarnar sem nú sé stefnt að leysa ekki allan vandann. Þær séu þó bráðnauðsynlegt fyrsta skref í átt að betra eftirliti. Þá segja þeir að þetta sé ekki aðeins hagsmunamál fyrirtækja. Það sé líka hagsmunamál almennings að eftirlit sé samræmt, skilvirkt og byggt upp þannig að það skili raunverulegum árangri. Eftirlit sem virkar misjafnlega eftir landshlutum þjóni hvorki fyrirtækjum né neytendum. Þess vegna skipti máli að stíga þetta skref núna.
Hér er hægt að lesa grein þeirra í heild sinni.
Vísir, 3. júní 2026.

