Fréttasafn



10. jún. 2021 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Samstarf um föngun kolefnis og nýtingu glatvarma

Álfheiður Ágústsdóttir frá Elkem, Gestur Pétursson frá Veitum, Edda Sif Pind Aradóttir frá CarbFix, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Ólafur Adolfsson, stjórnarformaður Þróunarfélags Grundartanga, skrifuðu undir viljayfirlýsingu um að vinna saman að fjölnýtingu þeirra efnisstrauma sem til staðar eru á Grundartangasvæðinu. Um er að ræða föngun og niðurdælingu á koldíoxíði og nýtingu glatvarma til heitaveitu. Elkem og CarbFix eru meðal aðildarfyrirtækja Samtaka iðnaðarins. 

Í tilkynningu kemur fram að verkefnið sé liður í því að gera Ísland að kolefnishlutlausu samfélagi, bæta orkunýtni, nýta umframorku í raforkukerfinu, minnka losun gróðurhúsalofttegunda, auka hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa, efla orkuskipti, stuðla að grænni nýsköpun og efla rannsóknar- og þróunarstarf. Verkefnið snýr jafnframt að þróun nýrrar tækni með möguleikum á útflutningi á þeirri tækni til annarra landa.

Staðsetning verkefnisins á Grundartanga kemur til þar sem á því svæði er aðgangur að þeim efnisstraumum sem verkefnið þarfnast, þ.e. koldíoxíð og glatvarmi frá iðnaðarstarfsemi á svæðinu, gott aðgengi að endurnýjanlegri umfram raforku og afar góð hafnaraðstaða.

Í tilkynningunni segir að vonir standi til þess að verkefnið styðji við áframhaldandi uppbyggingarskeið á Grundartanga sem grundvallað verði á nýsköpun, umhverfisvænum lausnum, verðmætasköpun og klasasamstarfi öflugra fyrirtækja, stofnana og opinberra aðila. Hagnýtingu glatvarma til raforkuframleiðslu og til uppsetningar á hitaveitu sem þjónað gæti iðnaðarsvæðinu á Grundartanga, Hvalfjarðarsveit og Akraneskaupstað og fyrirtækjum sem vilja nýta sér varmaorku í sinni starfsemi.

Ólafur Adolfsson: „Verkefnið sem unnið verður undir stjórn Þróunarfélags Grundartanga, fellur vel að loftslagsmarkmiðum Íslands en einnig að þróun í orkumálum og atvinnusköpun. Vonir standa til að verkefnið geti skapað umtalsverð verðmæti á komandi árum en það er hluti af uppbyggingu græns iðn- og auðlindaklasa á Grundartanga og munu niðurstöður þess nýtast á fleiri iðnaðarsvæðum á landinu.“ 

Edda Sif Pind Aradóttir: „Carbfix er með mikinn byr í seglunum, sem er afar ánægjulegt og nauðsynlegt þegar loftslagsváin gerir vart við sig með sífellt fjölbreyttari hætti. Við höfum vart undan að svara óskum um samstarf víðsvegar um heiminn en það er gott að ráðast fyrst í þetta verkefni hér heima fyrir.“ 

Á myndinni eru, talið frá vinstri, Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar, Gestur Pétursson frá Veitum, Álfheiður Ágústsdóttir frá Elkem, Edda Sif Pind Aradóttir frá CarbFix, Þórdís Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Ólaf Adolfsson, stjórnarformaður Þróunarfélags Grundartanga, og Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraness.