Samtök fyrirtækja í landbúnaði fordæma innbrot í Reykjabú
Samtök fyrirtækja í landbúnaði fordæma harðlega það innbrot sem framið var í húsakynni Reykjabús og lýst hefur verið opinberlega í fjölmiðlum. Atvikið er alvarlegt og er þetta annað innbrotið í landbúnaðarfyrirtæki á skömmum tíma, en nýverið var greint frá innbroti í húsakynni Stjörnugríss.
„Hugur okkar er hjá eigendum Reykjabús og starfsfólki fyrirtækisins. Fyrir þá sem verða fyrir slíku er þetta ekki aðeins eignatjón heldur innrás inn á vinnustað þeirra og lífsviðurværi. Það er óásættanlegt að fólk sem starfar við matvælaframleiðslu þurfi að búa við slíkt óöryggi. Þegar tvö innbrot eiga sér stað á skömmum tíma og leiða bæði til tjóns, dauða eða aflífunar dýra og mikils álags á starfsfólk er full ástæða til að staldra við og spyrja hvert þessi þróun er að leiða okkur. Það þarf að senda skýr skilaboð um að innbrot, áreiti og ólögmætar aðgerðir eigi aldrei rétt á sér,“ segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði.
Samtökin benda á að búrekstur og matvælaframleiðsla séu ekki aðeins atvinnustarfsemi heldur einnig hluti af innviðum samfélagsins. Óviðkomandi aðgangur að framleiðslusvæðum geti haft áhrif á starfsöryggi, smitvarnir, dýraheilbrigði og matvælaöryggi.
„Það er sérstakt áhyggjuefni að aðgerðir sem sagðar eru framkvæmdar í nafni dýravelferðar skuli í reynd hafa leitt til þess að dýr hafi drepist eða þurft að aflífa. Þá hefur aðgerð sem átti að snúast um velferð dýranna í raun snúist upp í andstæðu sína. Afleiðingarnar bitna á dýrunum sjálfum, starfsfólki fyrirtækjanna og fjölskyldum þeirra. Við eigum að geta átt opna og málefnalega umræðu um landbúnað, dýravelferð og matvælaframleiðslu. Slík umræða á fullan rétt á sér en það er grundvallaratriði að hún fari fram innan marka laga. Innbrot í atvinnuhúsnæði eru ekki eðlilegt tjáningarform heldur lögbrot,“ segir Margrét.
Í mörgum Evrópuríkjum hafa stjórnvöld þurft að bregðast við auknum innbrotum og aðgerðum sem beinast að búrekstri og matvælaframleiðslu. Samtök fyrirtækja í landbúnaði telja mikilvægt að háttsemi af þessu tagi sé skýrt fordæmd og stjórnvöld undirstriki að ólögmæt innkoma í landbúnaðarfyrirtæki verði ekki liðin.

