Fréttasafn



19. jún. 2025 Almennar fréttir Menntun

Samtök iðnaðarins styðja kappakstursliðið Team Spark

Samtök iðnaðarins eru meðal bakhjarla Team Spark og var undirritaður samningur þess efnis í gær. Team Spark er kappaksturslið nema í Háskóla Íslands sem hanna og smíða eins manns rafknúinn kappakstursbíl. Liðið samanstendur af rúmlega 40 nemendum við verkfræði- og náttúruvísindasvið sem keppir á bílnum erlendis í alþjóðlegum keppnum. Nánast allir stærstu tækniháskólar í Evrópu eru með lið í keppninni. Nemendurnir frá Háskóla Íslands hafa farið með kappakstursbíl í keppnir í eftirtöldum löndum; Austurríki, Bretland, Ítalía, Króatía og Spánn. 

Samtök iðnaðarins óska liðinu góðs gengis. 

Elín Edda Jóhannsdóttir, fjármálastjóri Team Spark, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, og Árni Friðrik Guðmundsson, kerfisstjóri/hópstjóri loftflæðihóps Team Spark. Elín Edda og Árni Friðrik eru bæði í vélaverkfræði í Háskóla Íslands.