Fréttasafn



26. jan. 2026 Almennar fréttir Menntun

Samvinna atvinnulífs og skóla á Menntadegi atvinnulífsins

Menntadagur atvinnulífsins fer fram miðvikudaginn 11. febrúar kl. 13.30-16.00 á Hilton Reykjavík Nordica. Dagurinn er vettvangur þar sem fyrirtæki, menntastofnanir, stjórnvöld og aðrir hagaðilar koma saman til að ræða hvernig menntun getur betur mætt raunverulegum þörfum framtíðarinnar. Sjónum verður sérstaklega beint að samspili og samvinnu atvinnulífs og skóla. Þátttakendur koma víða að úr atvinnulífi, menntakerfi, stjórnmálum og stjórnsýslu.

Hér er hægt að skrá sig. 

Dagskrá

Sigríður Margrét Oddsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fjallar um viðamikla könnun sem lögð hefur verið fyrir forsvarsfólk fyrirtækja innan vébanda SA.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Logi Einarsson, menningar- og háskólaráðherra og Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri hjá Reykjavíkurborg sitja fyrir svörum í pallborði hjá Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra SI.

Helga Halldórsdóttir, mannauðsstjóri Arion banka, Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri Verzlunarskóla Íslands, Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, og Tanya Zharov, aðstoðarforstjóri Alvotech, ræða málin í pallborði hjá Sigtryggi Magnasyni, forstöðumanni miðlunarsviðs SA.

Kastljósinu verður beint að samstarfi Norðlenska og VMA, starfinu í Elliðaárstöð og Bláa lóninu. Þá fáum við innlegg frá Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum og Sigurði Svavari Indriðasyni, sviðsstjóra bílgreinasviðs Iðunnar.

Síðast en ekki síst verður tilkynnt um menntafyrirtæki ársins og menntasprota.

Menntadagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku.

310x400_menntadagur