Fréttasafn



27. okt. 2022 Almennar fréttir

Sáttmáli atvinnulífsins gegn einelti, áreitni og ofbeldi

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, hefur afhent Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, uppfærðan sáttmála gegn einelti, áreitni og ofbeldi. SA og aðilarsamtök hvetja starfsfólk og stjórnendur fyrirtækja til að gera gildi hans að hluta af daglegum rekstri. 

Í sáttmálanum eru dregin fram gildi sem geta minnkað hættu á að einelti, áreitni eða ofbeldi á vinnustöðum eigi sér stað. Með því að hafa þau í heiðri stuðla starfsmenn að heilbrigðri vinnustaðamenningu.

Hér er hægt að nálgast veggspjöld með sáttmálanum. Sáttmálann má einnig nálgast í Húsi atvinnulífsins og fyrirtæki geta óskað eftir því að fá hann í pósti með því að senda tölvupóst á sa@sa.is. Sáttmálann er hægt að hengja upp í kaffistofum eða á göngum fyrirtækja til að minna á mikilvægi þess að tryggja vellíðan á vinnustöðum, öryggiskennd og góðan starfsanda.

Hér er hægt að nálgast fróðleik um stefnur fyrirtækja og skyldur atvinnurekenda í þessum málum. 

Hér er hægt að nálgast skýringarmyndband frá vinnumarkaðssviði SA um einelti, áreitni og ofbeldi:

https://vimeo.com/694394154


Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, með sáttmálann á milli sín.

Sattmali