Fréttasafn



4. mar. 2026 Almennar fréttir

Sérblað um Iðnþing 2026 fylgir Viðskiptablaðinu

Sérblað um Iðnþing 2026 fylgir Viðskiptablaðinu í dag. Í blaðinu sem er 32 síður er að finna viðtöl við Árna Sigurjónsson, formann SI, Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI, Tönyu Zharov, aðstoðarforstjóra Alvotech, Álfheiði Ágústsdóttur, forstjóra Elkem, og Sigríði Mogensen, sviðsstjóra iðnaðar- og hugverkasviðs SI. Einnig er að finna þrjár greinar í blaðinu eftir Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur, sviðsstjóra mannvirkjasviðs SI, og Lilju Björk Guðmundsdóttur, yfirlögfræðing SI.

Hér er hægt að nálgast blaðið á vef Viðskiptablaðsins.

Hér fyrir neðan eru hlekkir á einstaka efnisþætti blaðsins: 

Vidskiptabladid_forsida