SI fagna afnámi banns við kaupréttum stjórnarmanna
Samtök iðnaðarins (SI) fagna því að í nýju frumvarpi til breytinga á hlutafélagalögum sé lagt til að afnema bann við kaupréttum til stjórnarmanna. Breytingin er mikilvægt skref í að samræma íslenskt regluverk við hin Norðurlöndin og styrkja samkeppnishæfni atvinnulífsins.
Í sameiginlegri umsögn SI, Viðskiptaráðs og annarra helstu samtaka í atvinnulífinu er frumvarpinu fagnað, en umsögnin var lögð fram við meðferð málsins á Alþingi.
Mikilvægt fyrir hugverkaiðnaðinn
Íslensk tækni- og hugverkafyrirtæki keppa á alþjóðlegum markaði um sérhæft stjórnarfólk, reynslu og tengslanet. Kaupréttir og aðrir hlutabréfatengdir hvatar eru víða notaðir til að laða að þessa þekkingu og stuðla að langtímaverðmætasköpun.
SI hafa lengi bent á að íslenska regluverkið hafi verið of þröngt miðað við nágrannalöndin og hamlað vexti sprota- og hugverkafyrirtækja. Í sérstöku erindi SI til atvinnuvegaráðherra var einmitt kallað eftir þessari breytingu á lögunum.
Gagnsæi í stað fortakslausra takmarkana
Með breytingunni er horfið frá fortakslausum bönnum og meiri áhersla lögð á gagnsæi, góða stjórnarhætti og aðhald hluthafa. Samtökin benda þó á í umsögninni að útfærsla ákvæðanna þurfi að vera skýr og fyrirsjáanleg og að ekki verði gengið lengra en nauðsynlegt er við innleiðingu Evrópureglna.
SI telja þessa breytingu stórt heillaskref. Skýrari og samkeppnishæfari umgjörð um kauprétti mun styðja við vöxt hugverkaiðnaðar, auka verðmætasköpun og styrkja stöðu Íslands í alþjóðlegri samkeppni um hæfileika og fjármagn.
Hér er hægt að nálgast umsögnina í heild sinni.

