Fréttasafn



5. maí 2022 Almennar fréttir

SI og Austurbrú með opinn fund á Hótel Valaskjálf

Samtök iðnaðarins og Austurbrú efna til opins fundar þriðjudaginn 10. maí kl. 17.00-18.30 á Hótel Valaskjálf. Á fundinum verður efnt til samtals um stöðu og horfur atvinnulífs á Austurlandi. Boðið verður upp á léttar veitingar. Fundarstjóri er Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI.

Dagskrá

  • Árni Sigurjónsson, formaður SI
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Þráinn Lárusson, stjórnarformaður 701 Hótels og fulltrúi atvinnulífs í stjórn Austurbrúar
  • Einar Þorsteinsson, forstjóri Alcoa Fjarðaál
  • Umræður

Opinn-fundur-a-Austurlandi